Nýfallið Regn

Ásgeir

Composición de: Song: Ásgeir Trausti Einarsson | Lyrics: Einar Georg Einarsson
Glymur í bárujárni, barist er um nótt
blikar á tár og kannski vantar suma þrótt
Húsið það lekur, myndast alltaf mygla þar
minningadrekar leynast næstum allsstaðar

Í stríðum straumum fer
nálægt mér
nýfallinn regndropaher

Svartur á leikinn, svona verður þetta hér
svífur nú bleikur máni yfir þér og mér
Enda þótt næði flesta daga kalt um kinn
komum og ræðum þetta saman vinur minn

Í stríðum straumum fer
nálægt mér
nýfallinn regndropaher
    Página 1 / 1

    Letras y título
    Acordes y artista

    restablecer los ajustes
    OK