Ferð sem fótinn á hallar Út fyrir tímans rúm Fram eftir hyggjunnar víðfeðmi Ferðalangur heiðar hugans kannar Mótsögnum endaskipt ofbeldi á Um sannleikans ómyrka ás Vitundin ritar undir þjáningarboðorðsins dóm Merkustu spurningum lífsins Mætt með sinnuleysi Lífinu sjálfu í tómlæti drekkt Og lausnarþörf afmáð Allt er réttlætanlegt Í heimi þar sem ekkert er gott eða vont Siðferði er fýsn sem enga fær svölun Ef lífið er laust við gildi þá er réttsýni innantómt yfirdrep Lífsins lausn er allt annað þrýtur Dauði