Skemmd vitund visnar burt Hugsun og geðslag Aldrei aftur í þessum heimi hrærist Aðeins bergmál eftir Illa kunngjört æviskeið Sandur sem gljúpur um frelsis fingur rann Einstakt ritað eftirmál Af hrottum sem þér mætur höfðu á Undir rökkvuðu tunglsljósi Í dauðadal Ferðast sál í angist Voðaverk og sjálfsmorð var hans val Um breiða braut hann ferðaðist Í samvistum við dauðadæmda menn Alltaf undan fæti, alltaf valdi hann misferli Uns kvalafýsn varð losti sem svo loksins svalað var