Áin í hrauninu Í bláum draumi Hún unir ein Með ærslum leikur Á strengi og flúðir Og glettin skvettir Á gráan stein Í hyl og lygnu Er hægt á ferð Með hæverskum þokka Áin niðar Sí-endurfædd Og undraverð Hún fremur þá list Sem fegurst er Úr fornum eldi Er hljómbotn gerður Ég heyri óminn Í hjarta mér Ég heyri óminn Í hjarta mér