Rómeó Og Júlía

A Moti Sol

    Continues after the ad

    Upp í risinu sérðu lítið ljós
    heit hjörtu fölnuð rós.
    Matarleifar bogin skeið
    undan oddinum samviskan sveið.

    Þau trúðu á drauma myrkrið svalt,
    draumarnir tilbáðu þau.
    Fingurnir gældu við stálið kalt,
    lífs vökvan dælan söng.

    Draumarnir langir runnu í eitt
    dofin þau fylgdu með.
    Sprautan varð lífið, með henni gátu breitt,
    því sem átti eftir að ske.

    Upp í risinu lágu ófu sinn vef,
    óttann þræddu upp á þráð.
    Ekkert gat skeð því það var ekkert ef,
    ef vel var að gáð.

    Continues after the ad

    Hittust á laun - lék´ í friði og ró
    í skugganum sat Talía.
    Hvítir hestar drógu vagninn með
    Rómeó, við hlið hans sat Júlía.

    Trúðu á drauma-myrkrið svalt
    draumarnir tilbáðu þau.
    Rómeó - Júlía,
    Rómeó - Júlía.

    Þegar kaldir vindar haust sins blása,
    naprir um göturnar.
    Sérðu Júlíu standa bjóða sig hása,
    í von um líf í æðarnar.

    Því Rómeó villtist inn á annað svið,
    hans hlutverk gekk ekki þar.
    Of stór skammtur stitti þá bið,
    inn á klósetti á óþekktum bar.

    Hittust á laun - lék´ í friði og ró
    í skugganum sat Talía.
    Hvítir hestar drógu vagninn með
    Rómeó, við hlið hans sat Júlía.

    Trúðu á drauma-myrkrið svalt
    draumarnir tilbáðu þau.
    Rómeó - Júlía
    Rómeó - Júlía
    Rómeó - Júlía
    Rómeó - Júlía

    Song details

    Composition:

    Did you see an error?

    Enviar revisão