Leyndarmál

Ásgeir

Continues after the ad

Glitrar næturdögg, geng ég þar með henni
grátur hvítvoðungs berst frá rauðu húsi
Læðast refahjón, lafir bráð úr kjafti
lerkiskógurinn hann fær margt að vita

Þegar kóngurinn er með kross í hendi
koma hersveitir til að ná í skammtinn
svalir nátthrafnar sjá að nú er færi
sjúkleg árátta fær þá til að virka

Continues after the ad

Tifar lífsins blóm, tóri ef ég nenni
tárast silfurberg svo langt frá steinhúsi
andar sunnanblær, eflist af lífskrafti
enginn maður veit og enginn fær að vita

Þegar kóngurinn er með kross í hendi
koma hersveitir til að ná í skammtinn
svalir nátthrafnar sjá að nú er færi
sjúkleg árátta fær þá til að virka

Song details

Composition: Ásgeir Trausti Einarsson

Did you see an error?

Enviar revisão