Nýfallið Regn

Ásgeir

Continues after the ad

Glymur í bárujárni, barist er um nótt
blikar á tár og kannski vantar suma þrótt
Húsið það lekur, myndast alltaf mygla þar
minningadrekar leynast næstum allsstaðar

Í stríðum straumum fer
nálægt mér
nýfallinn regndropaher

Continues after the ad

Svartur á leikinn, svona verður þetta hér
svífur nú bleikur máni yfir þér og mér
Enda þótt næði flesta daga kalt um kinn
komum og ræðum þetta saman vinur minn

Í stríðum straumum fer
nálægt mér
nýfallinn regndropaher

Song details

Composition: Song: Ásgeir Trausti Einarsson | Lyrics: Einar Georg Einarsson

Did you see an error?

Enviar revisão