þEnnan Dag

Ásgeir

Continúa después del anuncio

Þú varst hjartablóm og ljóðadís og lag
í leiftursýn mér tókst að þekkja þig
þennan dag
og gæfan tók að gæla ögn við mig
Svo leið tíminn hratt með lífsins dans og brag
mér lærðist tafarlaust að þekkja það
þennan dag
að gæfan verður seint á vísum stað

Enn ég hugs’ um ástina og glaðan hag
og einnig þína mynd og þarflaust hik
þennan dag
hið eina litla, litla augnablik

Continúa después del anuncio

Þú varst hjartablóm og ljóðadís og lag
mér lærðist tafarlaust að þekkja það
þennan dag
að gæfan verður seint á vísum stað
að gæfan verður seint á vísum stað
að gæfan verður seint á vísum stað

Información de la canción

Composición: Song: Ásgeir Trausti Einarsson | Lyrics: Einar Georg Einarsson

¿Los datos están equivocados?

Enviar revisión