Silfurskotta

Emmsjé Gauti

    Continúa después del anuncio

    Ég þekki götuna eins og rotta
    Gulldrengur og silfurskotta
    Ég skil hurðina eftir opna
    Lofta til og súpa á líkömum
    Það er mín leið til að rotast
    Má ég smakka þetta skinn?
    Læri snerta kinnarnar
    Tungan smakkar þig
    Fingurgómar leika við þig
    Og við finnum yl
    Kannski ekki á morgun
    En í kvöld þá er ég þinn
    Tilfinning sem ég þekki ekki vel
    Ég er hræddur því hún kemur og fer
    Það er eitthvað nýtt sem er að vaxa inn í mér
    Ætla ekki að neita, held ég sé aðeins að laðast að þér
    En ég hef fundið það áður
    Og ég hef fundið mig sjálfur
    Samt týnt mér á sama mómenti
    Týnt mér í bárum af tárum
    En kannski er ég bara einfari
    Það er erfitt að greina mig
    Vil samt ást og hlýju en mitt space alveg eins og geimfari
    En á dimmu kvöldi þegar móða sest á gluggan
    Þegar dansgólfið ruggar og Bakkus kemur að hugga þá kem ég
    Á dimmu kvöldi þegar móða sest á gluggan
    Þegar dansgólfið ruggar og Bakkus kemur að hugga kemur þú

    Hún er týpan sem ég vil sjást með
    Veit ekki hvort hún eigi að treysta mér
    Ég er nýfarin að haga mér
    Vil hafa hana með
    Ég veit það manna best
    Hún er týpan sem ég vil sjást með
    Veit ekki hvort hún eigi að treysta mér
    Ég er nýfarin að haga mér
    Vil hafa hana með
    Ég veit það manna best

    Continúa después del anuncio

    Ég er tuttugu og sex
    En ef lagið er vinsælt þá segi ég sorrí því ég laug að þér
    Ég sagði að ég verði alltaf ég
    En tímarnir breytast og ég breytist með þessu
    Ég laug að mér
    Og núna er ég ég
    Geri mistök og endurtek mig of mikið
    Já ég endurtek mig of mikið
    Já ég endurtek mig of mikið
    Já ég endurtek mig of mikið
    Fortíðin þarf bara að vera þannig
    Pétur Pan þráir að verða að manni
    Fattaði einn hlut allt of seint
    Karlmennska finnst ekki á kvennafari
    En fokk, annar morgun þar sem ég er off
    Ég þekki ekki herbergið
    Krumpuð skyrta en straujað kort
    En ég þekki samt þetta ástand
    Svo ég fæ ekkert áfall
    Ég er að rúlla solo
    Þarf ekki að ganga á planka
    En ég þarf samt að vera fyrirmynd
    Fyrir hana hún er yndið mitt
    Klukkan segir svo söguna
    Hvort þroski gerir eitthvað fyrir mig
    Tíminn getur breytt mér en ekki vice versa
    Og ég vona að ég finni ást þegar sagan nær enda

    Hún er týpan sem ég vil sjást með
    Veit ekki hvort hún eigi að treysta mér
    Ég er nýfarin að haga mér
    Vil hafa hana með
    Ég veit það manna best
    Hún er týpan sem ég vil sjást með
    Veit ekki hvort hún eigi að treysta mér
    Ég er nýfarin að haga mér
    Vil hafa hana með
    Ég veit það manna best

    Información de la canción

    Composición:

    ¿Los datos están equivocados?

    Enviar revisión