Baráttusöngur (The Song of Fight)

Forgarður Helvítis

    Continúa después del anuncio

    Drekann hættum við aldrei að óttast
    fyrr en við höfum gengið gegn eldi hans
    og stungið úr honum augun
    Augnlaus lærir hann að virða óttann sem við þekkjum alltof vel

    Þjófinum mun okkur standa ógn af
    þar til við finnum híbýli hans
    og rænum hann hverju því sem honum er annt um
    Eignalaus lærir hann hve mikils við metum okkar eigur

    Við höfum lært til ferðar í þeynum
    Við þekkjum þögnina frá þeim sem vaxa af fræi
    og nýtum okkur blindu þeirra sem stara í sólina.

    Continúa después del anuncio

    Næturhvíslaranum fáum við ekki þaggað niður í
    fyrr en við höfum þrætt skuggastígana gegnum svartnættið
    og dregið yfir barka hans
    Þannig finnum við friðinn sem tilheyrir sálinni

    Risinn verður ekki lengur valdsmynd
    eftir að við höfum náð að fótum hans
    og höggvið á hásinar

    Við höfum lært til ferðar í þeynum
    Við þekkjum þögnina frá þeim sem vaxa af fræi
    og nýtum okkur blindu þeirra sem stara í sólina

    Información de la canción

    Composición:

    ¿Los datos están equivocados?

    Enviar revisión