Fangelsaður í Tilvist að Eilífu

Helfró

    Continues after the ad

    Versta martröð sem aumur mannshugur
    Getur hrundið til ímyndunar
    Er sú hræðilega hugmynd um að vera alltaf til
    Að eilífu hlekkjaður í þrálátri tilveru

    Í paradís sem eftir árþúsund sem saman renna í eitt
    Verður löngu könnuð slóð og vettvangur umkomuleysis
    Eilíf endurholdgun eins og sjúkur brandari
    Illgjarnra guða sem sjá tímann og rúm sem haldbæra einingu

    Continues after the ad

    Á sama hátt og dauðlegur maður myndi líta á hversdagslegan hlut
    Eins og að loka skordýr í kassa og hrista hann stöðugt
    Á meðan allt þeirra vesæla æviskeið er eingöngu
    Eitt andartak á þinni lífsleið sem er þeim ómögulegt

    Að gera sér í hugarlund
    Í taumlausri trylltri gleði mun ég slátra saklausum
    Til að sýna fram á að hinn eini grundvallarsannleikur er óreiðan
    Í þessari handahófskenndu tilviljun sem kviknun lífsneistans í rauninni er

    Song details

    Composition: Ragnar S

    Did you see an error?

    Enviar revisão