Fláráð fræði

Helfró

    Continúa después del anuncio

    Ég hef sökkt mér í flókin fræði
    Sem fjalla um samskipti tauga og frumna
    Í þeim tilgangi að ljúka upp leyndum dyrum
    Sem skyggja á hvatann að mínum myrku hugsunum

    Mistök! Í fljótfærni minni varð mér á
    Ólæstar dyr
    Bjóða þér ekki einungis inngöngu
    Heldur hleypa því út sem fangið var

    Continúa después del anuncio

    Yfir mig flæða sem hamfaraflóðbylgja
    Óstjórnlegar langanir, kenndir og þrár
    Í að úthella sem allra mestu blóði
    Og baða mig í tárum þeirra er syrgja

    því meira sem ég læri um sjúkleika minn
    því sterkari verða einkennin
    Uns eina hugsanlega lækningin
    Er að láta undan þeim og ganga erinda djöfulsins

    Er ég segi skilið við mannlega samkennd
    Og skipulega deyfi langanir í væntumþykju og ást
    Sé ég svo greinilega að allur minn ákafi fróðleiksvilji
    Var sem eldsneyti á saklaust sindur

    Información de la canción

    Composición: Ragnar S

    ¿Los datos están equivocados?

    Enviar revisión