Ég heyrði þig ekki fara

Kalli Bjarni

    Continúa después del anuncio

    Ég heyrði ekki fótatak og hjartað skildi það
    og hugurinn gat skynjað hvernig tíminn stóð í stað
    þögnin var svo lygileg þegar myrkrið snerti mig
    og meðan augnablikin týndust
    þráði sálin mín að faðma þig

    Eins og í svefni ég svíf
    inní svörtu augun þín
    þegar nóttin er nakin
    og nafn þitt
    ég fæ að hvísla ástin mín
    ég sakna þín

    Veruleikinn spurði mig og svefnin gaf mér svar
    í svartamyrkri reyndi ég að vita hvar ég var
    þögnin var svo lygileg þegar myrkrið snerti mig
    og meðan augnablikin týndust
    þráði sálin mín að faðma þig

    Continúa después del anuncio

    Eins og í svefni ég svíf
    inní svörtu augun þín
    þegar nóttin er nakin
    og nafn þitt
    ég fæ að hvísla ástin mín
    ég sakna þín

    Ég heyrði ekki neitt
    heyrði engin orð ekki fótatakið
    ég vakti í köldu myrkrinu
    og vondaufur lá ég í rúminu
    þá lét ég hugann reika
    heyrði ekki neitt
    milli draums og veruleika

    Eins og í svefni ég svíf
    inní svörtu augun þín
    þegar nóttin er nakin
    og nafn þitt
    ég fæ að hvísla ástin mín
    ég sakna þín

    Ég sakna þín....

    Información de la canción

    Composición:

    ¿Los datos están equivocados?

    Enviar revisión