Ferðalangurinn

Rokkurró

    Continúa después del anuncio

    Blátt áfram
    án vissu
    nýrra leiða leitaðir.
    Einn ferðar
    óhræddur
    lagðir upp í langferð.

    Þú gleymdir
    þeim orðum
    er við höfðum áður sagt.
    Án trega
    þú kvaddir
    það sem þekktir áður.

    Continúa después del anuncio

    Og því lengra er þú leitaðir
    þá fannstu
    að innra með þér
    leyndist lausnin.

    Áfram ferðu
    en fjarlægist samt
    það sem
    áður leitaðir
    hulið er þér.

    Información de la canción

    Composición:

    ¿Los datos están equivocados?

    Enviar revisión