Continúa después del anuncio

    Kvöld, úr norðri kólna fer
    Kemur yfir heiðar
    Vængjasláttur, vætta her
    Varúlfar til reiðar

    Ég reið yfir landið mitt, reri' út á fjörð
    Rólegur fjórin, ég lofaðI njórð
    Í ljósanna skiptum ég leit upp í skörð
    Ljót var sú sýn er mér mætti

    Kom yfir brúnina kolsvartur her
    Ég kúventi bátnum og hraðaðI mér
    Vængirnir steinrunnir, vígtannager
    Og væl sem nú kyrrðina tætti

    Skugga hann varpaðI, skelfileg sjón
    Skálmöld var risin og mikið varð tjón
    DrukknaðI þannig mín dýrasta bón
    Drepið var allt sem ég unni

    Continúa después del anuncio

    Verja þau átti en var til þess seinn
    Viti menn, lifandi eftir ei neinn
    Ataður svörður sem áður var hreinn
    Allt mitt var hrunið að grunni

    Ég sá
    Barnið mitt tætt, blóðugt og hrætt
    Ég sá
    Barið á húsgripum mínum og ætt
    Ég sá
    Saklaust blóð, fljóta um fljóð
    Ég sá
    Fjölskyldu slátrað sem var mér svo góð

    Ég sá
    Deyja mær, dæturnar tvær
    Ég sá
    Dreyrrauðar klærnar sem læstust í þær
    Ég sá
    Visna jurt, var einhvers spurt?
    Ég sá
    Vágestinn glotta og halda á burt

    Gekk um garð
    Gríðarskarð
    Höggvið hart
    Hel mig snart
    Vængjuð vá
    Vargur sá
    Nafn hans nefnt
    Nú skal hefnt

    Heit er gefið, heit sem verður efnt

    Información de la canción

    Composición:

    ¿Los datos están equivocados?

    Enviar revisión