Að Vori

Skálmöld

    Continúa después del anuncio

    þórunn auðna, þá hún fæddist
    þungt var yfir ísafold
    eymd sem allt um lá og læddist
    loftið sverti, vötn og mold

    myrkur að vori á melrakkasléttu
    meybarn var borið í óþökk og nauð
    fátæk og horuð hún fæddist, með réttu
    fyrst voru sporin öll hamingjusnauð

    þakkir fær sá er þórunni sendi
    þakkir af einingu
    ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi
    barnið með meiningu

    Continúa después del anuncio

    þórunn auðna, þá hún fæddist
    þeyr blés yfir dal og tún
    varla neina vá hún hræddist
    varin undir galdrarún

    þakkir fær sá er þórunni sendi
    þakkir af einingu góðar
    ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi
    barnið með meiningu þjóðar

    fyrst varð hún móðurlaus, föðurlaus siðan
    fjöllin og gróðurinn tóku að sér
    ljóshærða flóðið með lokkinn svo friðan
    læst hennar blóðbönd í örlagakver

    ég veit ekki hvar hún æskunni eyddi
    eða hvar hófst hennar ferð
    né hvað það var sem götuna greiddi
    gaf henni bogann og sverð

    þórunn auðna, þá hún fæddist
    þa blés von um íslandsströnd
    neistinn fyrir norðan glæddist
    nytsamleg sú hjálparhönd

    Información de la canción

    Composición: Snæbjörn Ragnarsson, Jón Geir Jóhannsson, Björgvin Sigurðsson, Baldur Ragnarsson, Þráinn Árni Baldvinsson y Gunnar Benediktsson

    ¿Los datos están equivocados?

    Enviar revisión