Continúa después del anuncio

    Minningin svíður, ég man þetta vel
    Missinn sem skóp hjá mér reiðina
    Skaðræðislýður sem skreið yfir mel
    Skarinn minn fríður var dreginn um Hel
    Óðni, sem bíður, nú ætt mína fel

    Víst var ég kvalinn og visinn og sljór
    Vitstola hljóp upp á heiðina
    Hálf- var ég galinn er hefnda ég sór
    Horfði á dalinn minn, kvaddi og fór
    Lamaður, kalinn en leiddur af Þór

    Há var heiðin
    Hungur og myrkur
    En áfram arkaði
    Löng var leiðin
    Lítill minn styrkur
    Er spor mín markaði

    Skepnan skorin
    Skaðræðisópin
    þá Hel loks hörfaði
    Víst á vorin
    Veinin og hrópin
    Berast frá vörðu við Baldurs haug

    Aldrei mun skilja þann skaða sem hlaust
    Skelfingarópin og neyðina
    Níðings- með vilja þú bein þeirra braust
    Börnin mín ylja mér ekki í haust
    Sorgir vil hylja, á Tý legg mitt traust

    Ásgarður teymdi mig aftur til þín
    örmagna glóp lýsti leiðina
    Varginn mig dreymdi, þá válegu sýn
    Vandlega geymdi hvar sól aldrei skín
    Lævísin streymdi frá Loka til mín

    Brennheitt blóðið
    Bunaði niður
    Er Vör oss vitjaði
    Hávært hljóðið
    Hryglur og kliður
    Er búkinn brytjaði

    Continúa después del anuncio

    Líkin lengi
    Lágu við steininn
    Þá goðin grófu oss
    Dána drengi
    Dysjuðu beinin

    Og ég þekktist þrekið
    þegar ég hélt af stað
    Við hef ég tryggðum tekið
    Traustur ég ríð í hlað

    Þú komst særður og sár
    Sundrað var allt þrekið
    Undir heiðninnar hönd
    Hefur fundið stað
    Hamar Þórs og hans þrár
    Þrymur gat ei tekið
    Þessi blóðslegnu bönd
    Bera skalt í hlað

    Víkingur á vorkvöldi
    Vaskur kallar Óðin
    Hallar- opnast hliðin þá
    Herma þetta ljóðin

    Baldur heitir bóndinn
    Sem bundinn er í ljóðin

    Loks er liðinn
    Löstur úr minni
    Nú birtast brautirnar
    Finn ég friðinn
    Frelsa mitt sinni
    Nú þagna þrautirnar

    Sláttur slaknar
    Sleipnir mig vekur
    Mér heilsar Heimdallur
    Valhöll vaknar
    Við mér hún tekur
    Og Goðheimur gjörvallur

    Hlaupum móti hetjum með skjöldinn
    Halir rísa aftur á kvöldin
    Bölsýnin, ef berst hún um völdin
    Burtu skal flæmd

    Höldum því að Heiðrúnarveigum
    Hornin fyllum, lyftum og teygum
    Sæhrímni til átu við eigum
    Engin trog tæmd

    Velkominn vertu
    Velkominn víkingur
    Velkominn víga valdur
    Velkominn vin

    Hetja hefur beinin sín borið
    Baldur horfir þó út í vorið
    Látlaust fas og létt er hans sporið
    Lést hann með sæmd

    Información de la canción

    Composición: Snæbjörn Ragnarsson, Jón Geir Jóhannsson, Björgvin Sigurðsson, Baldur Ragnarsson, Þráinn Árni Baldvinsson, Gunnar Benediktsson y Axel Arnason

    ¿Los datos están equivocados?

    Enviar revisión