Náttmál

Sólstafir

    Continues after the ad

    Æ hvað það svíður, ó þetta er svo sárt
    ónytjunginn ól ég í mér, frá blautu barnsbeini
    Æ hvað það svíður, ó þetta er svo sárt
    tel það ei mín tignarspor, ég eitrið saup svo ört
    Æ hvað það svíður, ó þetta er svo sárt
    austanþokan mjakast nú fjær, eins og jötnar á himninum
    Æ hvað það svíður, ó þetta er svo sárt
    þreyttur hleyp að heiman á ný, rétt eins og sólin sest æi sæ
    Senn koma siðirnir nýju, leiðin ljóta að baki er
    Skömmin hún gaf mér frelsi, kalda fjötra ei lengur ber
    Hann faðir minn ól mig upp, á annan veg en fór
    Ég óttasleginn andann dreg, en brosi með sjálfum mér
    Æ hvað það svíður, ó þetta er svo sárt
    vinátta er vegin til fjár, ég aldrei sá þennan leik
    Æ hvað það svíður, ó þetta er svo sárt
    lítill drengur flýr nú til fjalls þar sem óttans klukka ei slær

    Continues after the ad
    Song details

    Composition:

    Did you see an error?

    Enviar revisão