Draumur Um Nínu

Stefán & Eyfi

    Continues after the ad

    Núna ertu hjá mér, Nína
    Strýkur mér um vangann, Nína
    Ó, haltu í höndina á mér, Nína
    Því þú veist að ég mun aldrei aftur
    Ég mun aldrei, aldrei aftur
    Aldrei aftur eiga stund með þér

    Það er sárt að sakna einhvers
    Lífið heldur áfram, til hvers?
    Ég vil ekki vakna frá þér

    Því ég veit að þú munt aldrei aftur
    Þú munt aldrei, aldrei aftur
    Aldrei aftur strjúka vanga minn

    Þegar þú í draumum mínum birtist allt er ljúft og gott
    Og ég vildi ég gæti sofið heila öld
    Því að nóttin veitir aðeins skamma stund með þér

    Continues after the ad

    Er ég vakna
    Nína, þú ert ekki lengur hér
    Opna augun
    Engin strýkur blítt um vanga mér

    Dagurinn er eilífð án þín
    Kvöldið kalt og tómlegt án þín
    Er nóttin kemur fer ég til þín

    Þegar þú í draumum mínum birtist allt er ljúft og gott
    Og ég vildi ég gæti sofið heila öld
    Því að nóttin veitir aðeins skamma stund með þér

    Er ég vakna
    Nína, þú ert ekki lengur hér
    Opna augun
    Engin strýkur blítt um vanga mér

    Er ég vakna, ó
    Nína, þú ert ekki lengur hér
    Opna augun
    Engin strýkur blítt um vanga mér

    Song details

    Composition: Eyjólfur Kristjánsson

    Did you see an error?

    Enviar revisão