Djöflasýra

Wormlust

    Continues after the ad

    það hefur tóm augu
    drekkandi ódáinsveigar
    veitandi sýnir
    óhugnaðurinn, fegurðin allt þetta gall
    kjaftur þessi gleypir allt
    öllum sökkt er ofan í svaðið
    ormétnir líkamar engjast um
    hér er vaðið er í gegnum öskuna
    klökkar eru hendurnar
    líkkistur neglurnar
    engin handfesta finnst í kórónu keisarans
    finn ég á þessari stundu hvernig grafir okkar snertast

    hin dýrslega viska
    rekur í sundur sálir og magnar upp sáluhliðin
    helblóm spretta í augnatóftum þess
    í höfði skepnunnar eru svartir salir
    niðamyrkir gígar
    ærandi víddir þjáninga
    óteljandi

    það rís úr hafinu
    eins og krabbamein
    jarðarfararsálmur sem er leikinn á innyfli
    sultarhljóð sem fyllir himindjúpin
    án hugsunar
    þungt gnæfir þessi draummynd yfir alheimnum
    sem skinnhvítt rekald
    í hvítlogandi flæðarmáli stjarnanna
    andað inn sem myrkri
    dragsúg tómleikans
    sálnahirðir úr fjólubláum reyk
    sem með heljargreipum sínum fer um helgidóminn
    bakvið dánargrímu
    undir flogaveikum básunuþyt

    Continues after the ad

    sannleikans eilífa djúp
    þar er bæli dýrsins
    vitfirring kæfð í reyk
    frýs blóðþyrst hjartað
    opnast dauðans gin

    hungurvofunnar slóð
    hún er kviðrist og köld
    hér hægist andardráttur
    sést frosin mánamóða
    þúsund stjörnur loga
    undir dökku kufli
    skarlatshjúp
    umlykur dauðans myrkur

    enni þess markað máttugum rúnum
    gullnir hlekkir glitra
    fannhvítir faðmar vinda tannhjólin
    sligast undan klukknanna þunga hljóm
    beinanna klið
    tungan er hljóð
    starir út í tómið og umritar ósagðar reglur
    slæðingur þessi sameinast óminnishegranum

    hugdettur um að vakna upp frá martröðinni
    hugmyndir um tilveru innan holds
    rifnar í sundur af hröfnum

    formlaust
    svífur sjálfið yfir vötnunum
    ferðast út úr helli ofskynjanna
    fyrst sem seiður
    út í gegnum gimsteinalagt höfuðið
    úr munni þess sem biturt tvíeggjað sverð
    með sex vængi alsetta augum
    sem vitnisburður
    sem sneiðir í sundur glerhafið
    skilin á milli raunveruleika og martraða
    lastmæling sem stígur upp úr undirdjúpum vímunnar
    ferðast í gegnum víddir
    frá holdi til spádómsorða sem kollvarpa hásætum

    Song details

    Composition:

    Did you see an error?

    Enviar revisão