Tvær stjörnur

Yohanna

    Continúa después del anuncio

    Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
    Og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer
    En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
    Og leiði mig á endanum aftur til þín

    Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn
    Svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn
    Í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð
    Og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð

    Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin
    Því ég sé það fyrst á rykinu, hve langur tími er liðin
    Og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir öllu máli
    Því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli

    Continúa después del anuncio

    Já, og andlitið þitt málað
    Hve ég man það alltaf skýrt
    Auglínur og bleikar varir, brosið svo hýrt
    Jú ég veit vel, að ókeypis er allt það sem er best
    En svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst

    Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér
    Og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér
    Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á
    En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá

    Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
    Stjörnur á blárri festinguni sem færast nær og nær
    Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund
    En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund

    Información de la canción

    Composición:

    ¿Los datos están equivocados?

    Enviar revisión